Afhverju þarf fólk að mismæla sig!!!?? ég vildi að það væri ekki hægt
því þegar ég mismæli mig þá finn ég bara asnaeyrun byrja að vaxa á mér og það er ekki gaman
En ég verð að segja svona mesta fyndnasta sem hefur komið uppúr mér 
Byrja bara á um daginn þá spurði Halla mig hvort ég væri ekki búin að borða eitthvað í dag og ég svara
" jú 2 brauðsneiðar ristavélar" sem átti að þíða jú 2 ristabrauð"
Svo þegar ég var að hringja í Guðrúnu sem margir þekkja sem Gunnólu í sparisjóðinum og ég byrja að hringja
það er svarað og ég nývöknuð ligg uppí rúmi " já er" !!!!! svo fraust ég
því ég mundi ekki hvað hún héti
svo fór ég að hugsa Ingólfur heitir sonur hennar og ég alveg að panikka og "Halló" segir kallinn í sparisjóðinum og hvað haldiði að ég lét útúr munninum á mér
"já er INGOGOLA við" sem er blandað við Ingólf og Gunnólu!!!!!!!!! ég náttúrulega þurfti að skella á því að Halla hló eins henni væri borgað fyrir það og ég gat ekki talað því að ég hló af Höllu !! jájá hún verður alltaf Ingogola í okkar augum 
hehehehe
en ég man ekki meira í augnablikinu en segiði mér hefur eitthvað asnalegt komið fyrir ykkur þegar þið eruð að tala í síma líkt og nákvæmlega og einmitt blandað saman = NABBIT sem hún mín yndisfagra systir Eva Karlotta sagði í beinni á rás 2 hahaha koma svo people tell me 
Kveðja Dísin